Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Betis að blanda sér í meistaradeildarbaráttuna
Dýrmætur sigur fyrir Valencia
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í efstu deild spænska boltans þar sem Real Betis lagði Mallorca á útivelli til að setja pressu á liðin sem sitja í meistaradeildarsætum.

Abde Ezzalzouli og Cédric Bakambu skoruðu fyrir Betis í jöfnum fyrri hálfleik. Þeir nýttu færin sín mjög vel og juku gestirnir kraftinn í síðari hálfleik en tókst ekki að bæta marki við.

Þess í stað minnkaði Vedat Muriqi muninn með mögnuðum skalla en heimamenn komust þó ekki nær. Niðurstaðan verðskuldaður sigur Betis sem er aðeins fjórum stigum frá Atlético Madrid og Villarreal í baráttunni um meistaradeildarsæti.

Antony var á sínum stað í byrjunarliði Betis og átti mjög góðan leik. Hann lagði upp fyrir Bakambu og var afar líflegur.

Mallorca situr í fallsæti eftir tapið, með 24 stig eftir 24 umferðir.

Fyrr í dag tókst Valencia að bera sigur úr býtum á útivelli gegn Levante í fallbaráttunni. Fyrri hálfleikurinn var dapur og voru það heimamenn sem gerðu sig líklegri til að skora.

Síðari hálfleikurinn var áfram tíðindalítill en gestunum frá Valencia tókst að skora tvö mörk þökk sé einstaklingsgæðunum sem felast í Largie Ramazani og Umar Sadiq.

Ramazani skoraði magnað mark eftir að hafa fengið erfiða sendingu með skoppandi bolta, áður en Sadiq bolaði varnarmanni Levante frá til að hirða boltann og innsigla sigurinn.

Bæði mörkin komu eftir skyndisóknir og voru leikmenn Levante æfir yfir því að dómari leiksins hafi ekki dæmt brot á Sadiq þegar hann stal boltanum.

Lokatölur 0-2 og er Valencia með 26 stig eftir 24 umferðir, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Levante situr eftir með 18 stig og þarf að bæta sinn leik til muna til að halda sér uppi í efstu deild.

Mallorca 1 - 2 Betis
0-1 Abde Ezzalzouli ('18 )
0-2 Cedric Bakambu ('45+2 )
1-2 Vedat Muriqi ('66 )

Levante 0 - 2 Valencia
0-1 Largie Ramazani ('64 )
0-2 Umar Sadiq ('84 )
Rautt spjald: Kervin Arriaga, Levante ('95)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 24 19 3 2 53 19 +34 60
2 Barcelona 23 19 1 3 63 23 +40 58
3 Villarreal 23 14 3 6 44 26 +18 45
4 Atletico Madrid 24 13 6 5 38 21 +17 45
5 Betis 24 11 8 5 39 29 +10 41
6 Espanyol 24 10 5 9 29 33 -4 35
7 Celta 24 8 10 6 32 27 +5 34
8 Real Sociedad 24 8 7 9 34 35 -1 31
9 Athletic 24 9 4 11 27 34 -7 31
10 Osasuna 24 8 6 10 28 28 0 30
11 Getafe 24 8 5 11 20 28 -8 29
12 Sevilla 24 7 5 12 31 39 -8 26
13 Alaves 24 7 5 12 21 30 -9 26
14 Valencia 24 6 8 10 25 37 -12 26
15 Girona 23 6 8 9 22 37 -15 26
16 Elche 24 5 10 9 31 35 -4 25
17 Vallecano 23 6 7 10 21 30 -9 25
18 Mallorca 24 6 6 12 29 39 -10 24
19 Levante 23 4 6 13 26 40 -14 18
20 Oviedo 23 3 7 13 13 36 -23 16
Athugasemdir
banner
banner
banner