Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 10:40
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo og Ancelotti í karnivalstemningu í Ríó
Denilson, Sabrina Soto, Ronaldo og Carlo Ancelotti skemmtu sér vel.
Denilson, Sabrina Soto, Ronaldo og Carlo Ancelotti skemmtu sér vel.
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, lét sig ekki vanta í stemninguna og stuðið í karnivali Rio de Janeiro. Hann var þar í góðum félagsskap við hlið brasilísku goðsagnarinnar Ronaldo.

Með honum voru einnig brasilíska sjónvarpskonan og fyrirsætan Sabrina Sato og Denilson sem varð heimsmeistari ásamt Ronaldo 2002.

Ítalinn Ancelotti er fyrsti erlendi landsliðsþjálfari Brasilíu og stýrir liðinu á HM í sumar. Hann er 66 ára en mikill stemningsmaður og lifir sig vel inn í menningu Brasilíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner