Fatai Gbadamosi er lykilmaður í liði Vestra og hafði það sýnilega slæm áhrif á liðið þegar hann meiddist illa seint á síðasta tímabili, sleit krossband og óvíst er hvenær hann snýr aftur á völlinn. Hann meiddist gegn ÍA í fyrstu umferð neðri hlutans og missti af síðustu fjórum leikjum tímabilsins.
Fatai er 27 ára nígerískur miðjumaður, varnarsinnaður, og kom hann fyrst til Íslands tímabilið 2021 þegar hann lék með Kórdrengjum. Davíð Smári Lamude tók hann svo með sér til Vestra fyrir tímabilið 2023.
Fatai og Jeppe Pedersen mynduðu mjög öflugt par á miðju Vestra í fyrra og urðu saman bikarmeistarar. Jeppe var til viðtals hér á Fótbolti.net og var hann spurður út í Fatai.

„Fatai er ótrúlegur leikmaður, samband okkar var mjög sterkt (e. partner in crime)," segir Jeppe.
„Hann er ótrúlegur, sinnir allri skítavinnunni og lætur alla aðra í liðinu skína. Hvernig hann les leikinn, það hafa ekki margir þennan hæfileika, og það er eiginlega ómögulegt að fara framhjá honum með boltann. Við hefðum þurft á honum að halda í lok tímabilsins. Ég vona að hann snúi sem fyrst aftur á völlinn," segir Jeppe.
Vestri fékk einungis tvö stig eftir tvískiptingu og féll úr Bestu deildinni með tapi gegn KR í lokaumferðinni.
Athugasemdir