Heimild: Expressen
Landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen segir fulla einbeitingu á komandi tímabil með Malmö en hann var orðaður við enska B-deildarfélagið Sheffield United síðasta sumar. Daníel ræddi við sænska miðilinn Expressen um orðrómana.
„Það eina sem ég hugsa um núna er komandi tímabil. Ef félög fara að sýna áhuga þarf maður að meta hvort maður sé tilbúinn eða hvort það sé betra að vera áfram og verða enn tilbúnari fyrir næsta ár, hvenær sem það verður. Við tökum þá umræðu þegar að því kemur.“
Daníel meiddist illa á baki fyrir tæpum þremur árum og var hann frá í um tíu mánuði.
„Núna get ég næstum verið svolítið sáttur við að hafa fengið þessi meiðsli. Á árinu sem ég var frá varð ég bæði stærri og sterkari. Ég hefði ekki verið jafn tilbúinn ári fyrr.“
Á síðasta tímabili skoraði Daníel fimm mörk og lagði upp sjö í 23 leikjum í sænsku úrvalsdeildinni með Malmö. Hann er samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028.
Athugasemdir


