HK 3 - 2 Vestri
0-1 Marinó Steinar Hagbarðsson ('16)
1-1 Atli Hrafn Andrason ('18)
1-2 Sergine Modou Fall ('57)
2-2 Tumi Þorvarsson ('69)
3-2 Þorsteinn Aron Antonsson ('76)
Rautt spjald: Konstantin Cheshmedjiev, Vestri ('72)
0-1 Marinó Steinar Hagbarðsson ('16)
1-1 Atli Hrafn Andrason ('18)
1-2 Sergine Modou Fall ('57)
2-2 Tumi Þorvarsson ('69)
3-2 Þorsteinn Aron Antonsson ('76)
Rautt spjald: Konstantin Cheshmedjiev, Vestri ('72)
HK og Vestri áttust við í Lengjubikarnum í dag og úr varð afar spennandi slagur. Gestirnir frá Ísafirði náðu forystunni í tvígang en enduðu á að missa mann af velli með rautt spjald og tapa leiknum.
Marinó Steinar Hagbarðsson kom Vestra yfir snemma leiks en Atli Hrafn Andrason var fljótur að jafna. Staðan var 1-1 í leikhlé og endurheimti Sergine Modou Fall forystu gestanna í síðari hálfleik.
Tumi Þorvarsson svaraði með jöfnunarmarki á 69. mínútu og var Konstantin Cheshmedjiev rekinn af velli með seinna gula spjaldið sitt skömmu síðar.
HK nýtti sér liðsmuninn til að taka forystuna á 76. mínútu og reyndist það vera sigurmarkið. Varnarjaxlinn Þorsteinn Aron Antonsson var þar á ferðinni.
Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 3-2 fyrir HK, sem er með 7 stig eftir 3 umferðir. Vestri er með 3 stig.
Athugasemdir



