Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég var búinn á því að labba upp stigann á hótelinu"
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið spilaði vináttulandsleik gegn Mexíkó í síðasta mánuði og tapaði þar 4-0.

Aðstæður voru mjög erfiðar í leiknum þar sem borgin Queretaro, þar sem leikurinn fór fram, er hátt í 2 þúsund metra yfir sjávarmáli og loftið þunnt.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, var spurður út í aðstæðurnar í Mexíkó í viðtali sem var tekið við hann eftir að hann tilkynnti landsliðshóp fyrir vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí í dag.

„Ég er ekki að djóka. Ég var búinn á því að labba upp stigann á hótelinu. Þetta var ótrúlegt," sagði Arnar.

„Þetta kemst ekki alveg nægilega vel til skila í sjónvarpinu. En að tala við reynslumikla leikmenn eins og Gylfa sem sagði að þetta hefði mögulega verið erfiðasti leikurinn á hans ævi. Hann hefur spilað aðeins stærri leiki en þetta. Þá er hann væntanlega að vísa í aðstæður. Og Jói Berg líka."

„Þetta var erfitt en frábær skóli," bætti landsliðsþjálfarinn við.

Allt viðtalið er í spilaranum hér fyrir neðan.
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Athugasemdir
banner
banner