Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Markar mikilvægan áfanga á ferli þessa efnilega fótboltamanns"
Hlynur Þórhallsson í leik með Þrótti.
Hlynur Þórhallsson í leik með Þrótti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur í baráttu við Jón Daða Böðvarsson.
Hlynur í baráttu við Jón Daða Böðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur Þórhallsson, miðvörður Þróttar, var fyrr í dag valinn í U21 landsliðið í fyrsta sinn. Hlynur er uppalinn Þróttari, fæddur 2005 og hefur verið í lykilhlutverki síðustu tvö tímabil í Lengjudeildinni.

Þróttarar fagna þessum tíðindum á samfélagsmiðlum sínum.

„Leikmaður Þróttar, Hlynur Þórhallsson, hefur verið valinn í U21 landslið Íslands í fyrsta sinn og markar það mikilvægan áfanga á ferli þessa efnilega fótboltamanns," segir í tilkynningu Þróttar.

„Fyrir Hlyn er þetta einstakt tækifæri til að safna dýrmætri reynslu, þróa leik sinn enn frekar og festa sig í sessi sem framtíðarleikmaður íslenska landsliðsins. Slík verkefni skipta miklu máli í þroska ungra leikmanna."

„Valið í U21 landsliðið er ekki aðeins viðurkenning fyrir Hlyn sjálfan, heldur einnig umbun fyrir þá vinnu og elju sem hann hefur lagt í fótboltaiðkun sína undanfarin ár. Það er ljóst að framtíðin er björt ef hann heldur áfram á sömu braut," segja Þróttar og óska honum til hamingju.

Í vetur gerði ÍA tilboð í Hlyn en hann skrifaði frekar undir nýjan samning í Laugardalnum. „Ég komst að þeirri niðurstöðu að fyrir mína þróun sem leikmaður væri best að vera áfram í Þrótti. Þróttur er mitt félag og við mér finnst við eiga óklárað verkefni fyrir höndum, svo þetta er rétt ákvörðun fyrir mig," sagði Hlynur þá en það verður áhugavert að fylgjast með honum í Lengjudeildinni í sumar.

Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu Þróttar.


Athugasemdir
banner