Haukar 2 - 2 Grótta
0-1 Alexandria Madden ('4 )
0-2 Kristín Sara Arnardóttir ('63 )
1-2 Berglind Þrastardóttir ('79 )
2-2 Halla Þórdís Svansdóttir ('86 )
0-1 Alexandria Madden ('4 )
0-2 Kristín Sara Arnardóttir ('63 )
1-2 Berglind Þrastardóttir ('79 )
2-2 Halla Þórdís Svansdóttir ('86 )
Það var endurkoma á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Gróttu áttust við í Lengjubikar kvenna.
Grótta tók forystuna snemma leiks er Alexandria Madden skoraði og var staðan 0-1 í hálfleik.
Eftir rúmlega klukkutíma leik bætti Kristín Sara Arnardóttir við marki og staða Gróttu orðin vænleg. En Haukarnir gáfust ekki upp.
Berglind Þrastardóttir minnkaði muninn þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og á 86. mínútu jafnaði Halla Þórdís Svansdóttir fyrir Hauka.
Lokatölur 2-2 í kvöld. Haukar eru í þriðja sæti B-deildar Lengjubikarsins með sjö stig úr fimm leikjum á meðan Grótta er með fimm stig úr fjórum leikjum.
Athugasemdir




