Hrafn Tómasson hefur skrifað undir nýjan samning við KR sem gildir út tímabilið 2028.
Krummi, eins og hann er alltaf kallaður, er uppalinn KR-ingur sem hefur spilað 28 leiki með meistaraflokki KR og nánast sama fjölda leikja fyrir KV.
Krummi, eins og hann er alltaf kallaður, er uppalinn KR-ingur sem hefur spilað 28 leiki með meistaraflokki KR og nánast sama fjölda leikja fyrir KV.
Hann vakti mikla athygli síðasta sumar þegar hann lék mjög vel á láni með Þrótti í Lengjudeildinni.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hrósaði Krumma eftir sigur gegn Stjörnunni á dögunum.
„Ungu mennirnir Alexander Rafn og Siggi Breki voru frábærir, Krummi (Hrafn Tómasson) er að koma gríðarlega sterkur inn, það er auðvitað það fína, þetta eru KRingar, ungir þó að Krummi sé bara 23 á þessu ári, þá er hann ekki með mikla reynslu í efstu deild og það er frábært að sjá hann stíga upp og vaxa. Við erum með góða breidd og góðan og öflugan hóp," sagði Óskar Hrafn.
Athugasemdir




