KR vann sterkan sigur á Fram í Úlfarsárdal í kvöld. Þetta var fyrsti útisigur KR á tímabilinu.
Framarar voru fyrstir til að koma boltanum í netið þegar Jakob Byström skoraði eftir hálftíma leiik en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Stuttu síðar fékk KR aukaspyrnu á hættulegum stað. Matthias Præst tók skotið og Viktor Freyr Sigurðsson varði boltann út í teiginn. Galdur Guðmundsson var fyrstur á boltann og skoraði.
Galdur fékk tækifærið í byrjunarliði KR í fyrsta sinn í fjarveru Arons Sigurðarsonar, draumabyrjun fyrir hann.
Byström fékk annað tækifæri undir lok fyrri hálfleiks en skallaði yfir markið. Eftir klukkutíma leik átti Fred frábært skot fyrir utan vítateiginin en Halldór Snær Georgsson varði vel frá honum.
Orri Hrafn Kjartansson komst í dauðafæri en setti boltann framhjá stuttu síðar.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og því var fyrsti útisgur KR á tímabilinu í höfn. Fram hefur verið í miklum vandræðum að undanförnu en síðasti sigurleikur liðsins var gegn ÍA þann 5. júlí.
KR fer upp fyrir KA í 9. sæti með 23 stig en Fram er aðeins tveimur stigum fyrir ofan KR í 7.sæti.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir


