Guehi til sölu - Everton hafnaði fyrirspurnum í Branthwaite - Wharton falur fyrir 70 milljónir
banner
   lau 18. október 2025 22:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Frábært mark Ramsey dugði ekki til
Aaron Ramsey
Aaron Ramsey
Mynd: Leicester City FC
Leicester City 1 - 1 Portsmouth
1-0 Aaron Ramsey ('26 )
1-1 John Swift ('58 )

Leicester fékk Portsmouth í heimsókn í síðasta leik dagsins í Championship deildinni.

Aaron Ramsey kom Leicester yfir með laglegu marki. Issahaku Fatawu sendi boltann fyrir og Ramsey var kominn fram fyrir boltann en lyfti fætinum og skoraði með hælnum.

John Swift jafnaði metin eftir tæplega klukkutíma leik. Portsmouth komst upp í hraða sókn og Swift lék laglega á Luke Thomas og skoraði með skoti í nærhornið.

Leicester er með 17 stig í 10. sæti en liðið er taplaust í síðustu átta leikjum. Liðið hefur þó aðeins unnið þrjá af þessum átta leikjum. Portsmouth er í 14. sætimeð 13 stig og er taplaust í síðustu þremur leikjum.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 10 6 4 0 29 7 +22 22
2 Middlesbrough 10 6 3 1 14 7 +7 21
3 Stoke City 10 5 3 2 12 6 +6 18
4 Leicester 10 4 5 1 14 9 +5 17
5 West Brom 10 5 2 3 11 11 0 17
6 Millwall 10 5 2 3 11 13 -2 17
7 Bristol City 10 4 4 2 16 10 +6 16
8 Preston NE 10 4 4 2 12 9 +3 16
9 Charlton Athletic 10 4 3 3 10 9 +1 15
10 Hull City 10 4 3 3 17 18 -1 15
11 QPR 10 4 3 3 14 16 -2 15
12 Ipswich Town 9 3 4 2 16 10 +6 13
13 Swansea 10 3 4 3 10 10 0 13
14 Portsmouth 10 3 4 3 9 10 -1 13
15 Watford 10 3 3 4 11 12 -1 12
16 Southampton 10 2 6 2 11 12 -1 12
17 Birmingham 10 3 3 4 10 14 -4 12
18 Wrexham 10 2 4 4 14 16 -2 10
19 Oxford United 10 2 3 5 11 13 -2 9
20 Norwich 10 2 2 6 11 15 -4 8
21 Derby County 10 1 5 4 11 16 -5 8
22 Blackburn 9 2 1 6 7 13 -6 7
23 Sheffield Utd 10 2 0 8 4 16 -12 6
24 Sheff Wed 10 1 3 6 9 22 -13 6
Athugasemdir
banner
banner