Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 10:15
Elvar Geir Magnússon
Annar Bruno til Man Utd?
Bruno Guimaraes.
Bruno Guimaraes.
Mynd: EPA
Reuters segir að Manchester United sé í viðræðum við Newcastle um möguleg kaup á fyrirliða liðsins, Bruno Guimaraes, fyrir 69 milljónir punda.

Þá segir að Real Madrid hafi einnig áhuga á brasilíska miðjumanninum sem gæti sett strik í reikninginn í áætlunum United.

Casemiro yfirgefur Man Utd í sumar og sagt er að hann hafi persónulega mælt með því við félagið að Bruno Guimaraes yrði keyptur til að fylla sitt skarð.

United ætlar að styrkja miðsvæði sitt og hefur verið orðað við annan leikmann Newcastle, Sandro Tonali, en ólíklegt er að þeir verði báðir keyptir.

Þá eru Tyler Adams, Elliot Anderson, Carlos Baleba, Joao Gomes og Adam Wharton allir sagðir á blaði hjá Rauðu djöflunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner