Grótta er búið að ráða öflugan markmannsþjálfara til starfa hjá sér en hann er 27 ára gamall Finni sem býr yfir mikilli reynslu.
Anton hefur á síðustu tveimur árum starfað sem markmannsþjálfari hjá FC Elva í Eistlandi og KTP í Finnlandi en hann er um þessar mundir að ljúka UEFA-A markmannsþjálfaragráðu hjá finnska fótboltasambandinu.
Anton er búinn að starfa hjá Gróttu undanfarna mánuði þar sem hann sinnir þjálfun á markvörðum meistaraflokks og kemur einnig að þjálfun á efnilegum markvörðum í uppeldisstarfinu.
„Það er stór ákvörðun að leita út fyrir landsteinana að þjálfurum en við erum alsæl með að hafa krækt í Anton. Hann er metnaðarfullur og sinnir starfi sínu af mikilli fagmennsku. Fyrstu mánuðirnir hafa gengið vel og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Anton," segir Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.
Anton svaraði einnig spurningum og talaði þar um að Grótta sé félag með mikla möguleika og að hann sé spenntur fyrir að starfa í íslenska boltanum.
„Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu og tel að bæði kvenna- og karlaliðin okkar geti gert flotta hluti í Lengjudeildinni," sagði Anton meðal annars.
Athugasemdir


