Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Írlands opinberaði í dag landsliðshópinn fyrir HM umspilið þar sem liðið mun leika gegn Tékklandi í undanúrslitum.
Harvey Vale, 22 ára leikmaður Queens Park Rangers, var valinn en hann lék fyrir yngri landslið Englands og var fyrirliði enska U19 liðsins sem varð Evrópumeistari 2022.
Harvey Vale, 22 ára leikmaður Queens Park Rangers, var valinn en hann lék fyrir yngri landslið Englands og var fyrirliði enska U19 liðsins sem varð Evrópumeistari 2022.
Vale er með írskt vegabréf og hefur fengið grænt ljós frá FIFA að spila fyrir þjóðina.
„Ég talaði við hann fyrir rúmu ári síðan. Hann sýndi mikinn vilja til að spila fyrir Írland. Hann var þá meiddur og við höfum fylgst með honum. Hann hefur verið vaxandi og þetta er fullkominn tímapunktur til að kalla hann inn í hópinn," segir Heimir.
„Góður leikmaður, góður karakter og vinnusamur leikmaður, er með sköpunarmátt og skorar mörk. Ég hlakka mikið til að vinna með Harvey."
Ef Írland vinnur Tékkland mætir liðið Danmörku eða Norður-Makedóníu í úrslitaleik um sæti á HM 31. mars.
Landsliðshópur Írlands:
Markverðir: Caoimhin Kelleher (Brentford), Mark Travers (Everton), Josh Keeley (Luton)
Varnarmenn: Seamus Coleman (Everton), Jimmy Dunne (QPR), Nathan Collins (Brentford), Dara O'Shea (Ipswich), Jake O'Brien (Everton), John Egan (Hull City), James Abankwah (Watford), Liam Scales (Celtic), Robbie Brady (Preston), Ryan Manning (Southampton)
Miðjumenn: Jayson Molumby (West Brom), Bosun Lawal (Stoke), Jack Taylor (Ipswich), Alan Browne (Middlesbrough, á láni frá Sunderland), Jason Knight (Bristol City), Finn Azaz (Southampton), Harvey Vale (QPR)
Sóknarmenn: Troy Parrott (AZ Alkmaar), Adam Idah (Swansea City), Johnny Kenny (Bolton, á láni frá Ipswich), Chiedozie Ogbene (Sheffield United, á láni frá Ipswich), Sammie Szmodics (Derby, á láni frá Ipswich)
Athugasemdir


