Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Dagur lagði upp - Andri Fannar lék allan leikinn
Mynd: EPA
Mynd: Kasimpasa
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Brann sem heimsótti Bryne í 8-liða úrslitum norska bikarsins í dag.

Freyr Alexandersson er þjálfari Brann og voru gestirnir talsvert sterkari aðilinn. Bryne náði forystunni gegn gangi leiksins en Jón Dagur lagði upp jöfnunarmark Brann sex mínútum síðar.

Brann vann leikinn með marki í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 1-2. Kristall Máni Ingason fékk að spila síðustu mínútur leiksins.

KFUM Oslo og Álasund eru einnig búin að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitunum en Lilleström og Bodö/Glimt keppast um síðasta sætið.

Í efstu deild í Tyrklandi lék Andri Fannar Baldursson allan leikinn á útivelli gegn stórliði Besiktas.

Kasimpasa tapaði 2-1 og er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið, með 24 stig eftir 27 umferðir.

Bryne 1 - 2 Brann

Besiktas 2 - 1 Kasimpasa

Athugasemdir
banner