Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 17:29
Elvar Geir Magnússon
Jörgensen við það að gráta í símanum
Mynd: EPA
Danski markvörðurinn Filip Jörgensen hjá Chelsea hefur neyðst til að fara í aðgerð vegna nárameiðsla og verður ekki með danska landsliðinu í HM umspilinu.

„Ég talaði við ungan mann sem var við það að gráta í símanum. Hann var svo spenntur fyrir því að hitta okkur og hjálpa okkur," segir Brian Riemer, landsliðsþjálfari Danmerkur.

Danmörk mætir Norður-Makedóníu í umspili um HM-sæti þann 26. mars. Ef þeir vinna þann leik bíður þeirra úrslitaleikur um HM-sæti gegn annaðhvort Tékklandi eða Írlandi.

Jörgensen og Robert Sanchez hafa verið að skipta leikjunum á milli sín hjá Chelsea undanfarnar vikur en nú er ljóst að Sanchez verður í rammanum gegn Everton um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner