Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KSI gerir Andy Carroll að bráðabirgðastjóra
Andy Carroll.
Andy Carroll.
Mynd: Amiens
Andy Carroll hefur verið ráðinn stjóri Dagenham & Redbridge til bráðabirgða aðeins tveimur vikum eftir að samfélagsmiðlastjarnan KSI keypti hlut í félaginu.

Carroll hefur verið að spila með utandeildarliðinu á þessu tímabili en mun stýra því til bráðabirgða eftir að Lee Bradbury var rekinn í kjölfarið á 3-2 tapi gegn Farnborough á þriðjudag.

Dagenham er í tólfta sæti National League South sem er sjötta efsta deild á Englandi.

Carroll, sem er fyrrum sóknarmaður Liverpool og fleiri félaga í ensku úrvalsdeildinni, hefur enga stjórareynslu en mun núna reyna fyrir sér. Hans fyrsti leikur við stjórnvölinn er á laugardaginn gegn Torquay United sem stýrt er af engum öðrum en Neil Warnock.
Athugasemdir
banner
banner