Markverðir Real Madrid og Barcelona meiddust í Meistaradeildarleikjum vikunnar og samkvæmt spænskum fjölmiðlum er óvissa með þátttöku beggja í 8-liða úrslitum.
Thibaut Courtois fór af velli hjá Real Madrid í hálfleik gegn Manchester City vegna vöðvameiðsla. Hann fer í nánari skoðun í dag en Diario AS segir mögulegt að hann verði frá næstu vikurnar.
Real Madrid á grannaslag gegn Atletico Madrid í La Liga um helgina og þrjár vikur er í einvígi gegn Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þá fór Joan Garcia, markvörður Barcelona, meiddur af velli í stórsigrinum gegn Newcastle í gær og talað um að hann verði frá í 2-3 vikur.
Garcia hefur leikið vel fyrir Barcelona síðan hann kom frá Espanyol í fyrra.
Börsungar mæta Atletico Madrid í spænsku einvígi í 8-liða úrslitum og er Garcia í kapphlaupi við tímann til að ná því. Það er allavega ljóst að Wojciech Szczesny ver markið gegn Rayo Vallecano um helgina.
Athugasemdir