Hlakkar til að mæta PSG aftur
Arne Slot þjálfari Liverpool sagði í viðtali eftir sigur gegn Galatasaray í Meistaradeildinni að Mohamed Salah hafi beðið um skiptingu.
Salah var í byrjunarliðinu og átti mark og stoðsendingu eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Honum var skipt af velli á 74. mínútu.
„Mo Salah bað um skiptingu, hann fann fyrir einhverju. Við vonum að þetta sé ekkert alvarlegt, við verðum að sjá til hvernig hann verður um helgina," sagði Slot, en Liverpool heimsækir Brighton á laugardaginn í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
Liverpool lagði Galatasaray að velli og mætir PSG í 8-liða úrslitum, en liðin mættust einnig á síðustu leiktíð og hafði PSG betur.
„Liverpool-PSG á Anfield var besti leikur sem ég hef þjálfað á ferlinum. Úrslitin voru neikvæð en við spiluðum magnaðan fótbolta, svona á að spila fótbolta. Ég hlakka til að mæta PSG aftur."
Athugasemdir



