UEFA hefur boðað fimm stærstu deildir Evrópu til fundar í sumar þar sem áætlunin er að skerpa á og fara yfir notkun á VAR myndbandsdómgæslunni.
Á fundinum verður farið yfir það hvernig eigi að færa notkunina aftur í upphaflegan tilgang þar sem VAR á bara að bregðast við augljósum mistökum.
Enska úrvalsdeildin, La Liga, ítalska A-deildin, þýska Bundesligan og franska deildin hafa verið boðuð á fundinn.

Roberto Rosetti, yfirmaður dómaramála hjá UEFA, sagði í síðasta mánuði að verið væri að ofnota VAR. Talið er að hann sé aðallega að beina orðum sínum að ensku úrvalsdeildinni þar sem VAR er að hirða fyrirsagnirnar nánast í hverri umferð.
„Við höfum gleymt aðeins upphaflega tilgangnum með VAR. Við töluðum um að leiðrétta augljós mistök. Þegar það eru gerð klár mistök þá virkar tæknin frábærlega," sagði Rosetti.
„Þegar kemur að huglægu mati er tæknin erfiðari. Þess vegna var ákveðið að nota þetta þegar það eru sannanir fyrir augljósum mistökum. Við getum ekki færst í þá átt að nota VAR í öllum atriðum. Við elskum fótboltann eins og hann er."
Þá gagnrýndi Rosetti ofnotkun á því að skoða atvik í mjög hægum endursýningum til að greina brot sem virðast algjörlega minniháttar í rauntíma.
Athugasemdir