Joshua Zirkzee mun líklega yfirgefa Manchester United í sumar. Hann hefur verið í algjöru aukahlutverki á þessu tímabili.
Samkvæmt Tuttosport á Ítalíu er umboðsmaður hollenska framherjans að daðra við Juventus.
Samkvæmt Tuttosport á Ítalíu er umboðsmaður hollenska framherjans að daðra við Juventus.
Kia Joorabchian, umboðsmaður Zirkzee, hefur látið Juventus vita að leikmaðurinn vilji ganga í raðir ítalska félagsins í sumar.
Talið er að Zirkzee sé fáanlegur fyrir um 25 milljónir evra í sumar.
Zirkzee spilaði áður á Ítalíu með Bologna en United keypti hann fyrir 36,5 milljónir punda sumarið 2024.
Athugasemdir



