Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
   mið 19. apríl 2023 22:42
Kári Snorrason
Nonni Sveins: Áttum alltaf á brattann að sækja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólíklegt er að Delphin spili á móti Val á sunnudaginn
Ólíklegt er að Delphin spili á móti Val á sunnudaginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Snær er á láni hjá Þrótti R. en kom inn á gegn Fram þrátt fyrir að vera samningsbundinn Fram
Aron Snær er á láni hjá Þrótti R. en kom inn á gegn Fram þrátt fyrir að vera samningsbundinn Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram tapaði óvænt gegn Þrótti R. í 32-liða úrslitum í Mjólkurbikarnum. Jón Sveinsson þjálfari Fram kom í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  3 Þróttur R.

„Nei ég er klárlega ekki ánægður, mjög svekkjandi að detta út gegn mjög spræku Þróttaraliði. Þeir gáfu okkur virkilega góðan leik, þeir voru grimmari en við og komust yfir, þannig við áttum alltaf á brattann að sækja og það gekk ekki að ná jöfnunarmarkinu þrátt fyrir fínan seinni hálfleik."

Fram fékk tvö mörk á sig úr föstum leikatriðum

„Ég hef ekkert sérstakar áhyggjur af þessu, það gekk ágætlega að verjast föstum leikatriðum í vor og það sem af er móti. Auðvitað klaufalegt að fá þessi mörk á sig, við þurfum að skoða það en það hefur ekkert verið neitt vandamál."

Tiago kemur aftur inn í liðið eftir meiðsli og skorar

„Vissulega mikilvægur leikmaður fyrir okkur en hann þarf að vera heill til þess að spila, þetta er fyrsti leikurinn sem hann getur byrjað og vonandi getum við fjölgað mínútunum eftir því sem á líður."

Delphin Tshiembe var utan hóps vegna heilahristings sem hann hlaut gegn HK, verður hann leikhæfur gegn Val á sunnudaginn?

„Delphin er ólíklegur á móti Val en vonandi eftir það. En það kemur betur í ljós á morgun, þá fer hann í skoðun og við vitum nánar stöðuna á honum."

Aron Snær er samningsbundinn Fram en fór á lán til Þróttar R. og spilaði leikinn í kvöld

„Við ákváðum að lána hann áður en við drógumst á móti Þrótti R. í bikarnum. Við erum að lána hann til að hann fái mínútur og verði betri leikmaður og ég ætla þá ekki að taka mínútur af honum sem hann á möguleika á að fá. Þetta getur auðvitað verið tvíeggja en við tókum þessa ákvörðun."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner