Newcastle United gerir fastlega ráð fyrir því að ítalski landsliðsmaðurinn Sandro Tonali fari frá félaginu mistakist því að komast í Evrópukeppni á næstu leiktíð, en Manchester United er sagt undirbúa tilboð í leikmanninn. Daily Mail og Shield's Gazette greina frá.
Gazette segir að Tonali og umboðsmenn hans séu sannfærðir um að það sé heiðursmannasamkomulag við klúbbinn um framtíð hans og að Manchester United hafi þegar hafið undirbúning við að fá ítalska miðjumanninn eftir tímabilið.
Hingað til hefur Tonali verið talinn ósnertanlegur en staðan gæti breyst í sumar. Craig Hope hjá Daily Mail segir að Man Utd muni leggja fram formlegt tilboð í lok tímabils.
Newcastle er í 12. sæti deildarinnar og er útlit fyrir að liðið muni missa af Evrópusæti.
Möguleikinn er vissulega enn til staðar. Það þarf að komast á skrið og vinna upp sex til sjö stiga forskot Liverpool og Chelsea og vonast til að þau og önnur lið þar á milli, misstígi sig.
Tonali, sem er 25 ára gamall, kom til Newcastle frá AC Milan árið 2023 og verið einn af þeirra bestu mönnum síðan. Hann varð deildabikarmeistari með liðinu á síðasta ári, sem var fyrsti stóri titill félagsins í 70 ár.
Athugasemdir

