Ayden Heaven, varnarmaður Manchester United, æfði í gær í fyrsta sinn á sínum ferli með enska A-landsliðinu. Hann er í U20 hópi Englands og var kallaður inn á æfingar hjá A-liðinu sem undirbýr sig fyrir vináttuleiki gegn Úrúgvæ og Japan.
Thomas Tuchel valdi stóran hóp, 35 manna, fyrir leikina tvo, en ekki allir leikmennirnir koma inn í hópinn á sama tíma og því var pláss fyrir aukamann á æfingu. Hann hitti þar fyrir Kobbie Mainoo og Harry Maguire, liðsfélaga sína hjá Man Utd.
Búist er við því að Heaven haldi svo til Ítalíu þar sem U20 lið Englands mætir heimamönnum.

Heaven, sem er 19 ára, kom til United frá Arsenal fyrir rúmu ári síðan og hefur komið við sögu í 21 leik með United frá komu sinni.
Hjá United er hann í samkeppni við Harry Maguire, Leny Yoro, Lisandro Martínez og Matthijs de Ligt um sæti í liðinu.
Athugasemdir