Fram hefur náð samkomulagi við danska félagið AB um að fá Ægi Jarl Jónasson til félagsins en hann mun ganga formlega í raðir félagsins á næstu dögum. Þetta herma heimildir Fótbolta.net
Greint var frá því á Fótbolta.net í síðasta mánuði að Ægir Jarl væri búinn að semja við Fram og staðfesti Rúnar Kristinsson, þjálfari liðsins þær fréttir.
Samningur Ægis við AB átti þó ekki að renna út fyrr en í lok júní og hafa Framarar unnið hörðum höndum að því að ná samkomulagi við AB um að fá hann fyrir fyrsta leik Bestu deildarinnar sem fer fram gegn ÍA þann 12. apríl.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Fram náð samkomulagi við AB um að fá Ægi til félagsins fyrir þann tíma. Hann er væntanlegur í byrjun apríl.
Ægir er að glíma við meiðsli og því óvíst hvort hann verði með Fram gegn ÍA í 1. umferðinni.
Hann er uppalinn í Fjölni en gekk í raðir KR árið 2019 og spilaði þar undir stjórn Rúnars áður en hann hélt til AB árið 2024. Þar spilaði hann fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson sem hætti hjá AB í lok síðasta árs og tók við FH.
Athugasemdir



