Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fös 27. mars 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland um helgina - Mjólkurbikar, landsliðið í Kanada og meistarar meistaranna
Víkingar mæta Vestra í meistarar meistaranna
Víkingar mæta Vestra í meistarar meistaranna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Kanada í vináttulandsleik í Toronto
Ísland mætir Kanada í vináttulandsleik í Toronto
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Blikar spila við Víking í úrslitaleik Lengjubikarsins
Blikar spila við Víking í úrslitaleik Lengjubikarsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er pökkuð dagskrá í íslenska boltanum um helgina en spilað er í Mjólkurbikarnum, karlalandsliðið spilar við Kanada og þá fer úrslitaleikur Lengjubikars kvenna fram.

Í kvöld eru sex leikir á dagskrá í Mjólkurbikarnum þar sem HK mun meðal annars mæta BF 108 og þá eigast Tindastóll og Magni við í norðanslag.

Á morgun er vináttulandsleikur Íslands og Kanada í Toronto, en þetta er fyrri landsleikur Íslands í þessum glugga. Hann hefst klukkan 17:00 á íslenskum tíma.

Átta leikir eru í Mjólkurbikarnum og þá mætast Breiðablik og Víkingur í úrslitaleik A-deildar Lengjubikars kvenna. Sá leikur er spilaður klukkan 14:30 á Kópavogsvelli.

Á sunnudag fer fram leikur meistara meistaranna þar sem deildarmeistarar Víkings mæta bikarmeisturum Vestra klukkan 14:00 á Víkingsvelli. ÍR og Afturelding eigast þá við í Mjólkurbikarnum, en alla leiki helgarinnar má sjá hér fyrir neðan.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 27. mars

Mjólkurbikar karla
19:00 Höttur-Neisti D. (Rafey-völlurinn)
19:00 HK-BF 108 (Kórinn)
19:00 Álftanes-Kári (HTH völlurinn)
19:00 Tindastóll-Magni (Sauðárkróksvöllur)
19:00 Selfoss-Augnablik (JÁVERK-völlurinn)

Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 2
19:00 Augnablik-Afturelding (Fífan)

laugardagur 28. mars

A-landslið karla - Vináttuleikir 2026
17:00 Kanada-Ísland (BMO Field)

Mjólkurbikar karla
14:00 Þróttur R.-Víkingur Ó. (AVIS völlurinn)
14:00 KFA-Sindri (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Völsungur-Kormákur/Hvöt (GPG völlurinn)
14:00 Elliði-Grindavík (Fylkisvöllur)
14:00 Léttir-Árbær (ÍR-völlur)
14:15 Ýmir-KFS (Kórinn)
15:00 Ægir-Reynir S. (JÁVERK-völlurinn)
16:00 Leiknir R.-Smári (Domusnovavöllurinn)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 1
17:00 Kría-Árborg (Vivaldivöllurinn)

Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
14:30 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)

Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 1
16:30 Völsungur-Fjölnir (GPG völlurinn)

sunnudagur 29. mars

Mjólkurbikar karla
20:00 ÍR-Afturelding (Egilshöll)

Meistarakeppni karla
14:00 Víkingur R.-Vestri (Víkingsvöllur)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 3
17:00 KM-Vængir Júpiters (Kórinn - Gervigras)

Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 2
16:00 Augnablik-ÍR (Fífan)
Slapp
Athugasemdir
banner