Ítalski blaðamaðurinn Rudy Galetti, sem er með yfir 150 þúsund fylgjendur á X, segir hafa heimildir fyrir því að félög í fimm stærstu deildum Evrópu séu að fylgjast með Ágústi Orra Þorsteinssyni, leikmanni Breiðabliks.
24.02.2026 10:30
Ágúst Orri fer ekki til Póllands - „Hélt ég væri að fara út en síðan breyttist það"
Ágúst er 21 árs gamall sóknarsinnaður leikmaður sem er uppalinn í Blikum.
Hann fór árið 2022 til Malmö í Svíþjóð en sneri aftur heim í Blika ári síðar.
Árið 2023 var hann seldur til Genoa á Ítalíu þar sem hann spilaði í rúmt ár með yngri liðunum en aftur sneri hann heim í Blika og hefur verið þar síðan.
Ágúst er spennandi leikmaður sem var valinn í Bestu deildar-landslið Arnars Gunnlaugssonar fyrir vináttulandsleikinn gegn Mexíkó í síðasta mánuði og þreytti hann frumraun sína í þeim leik.
Blikinn átti þá frábæran leik með U21 árs landsliðinu í 6-2 stórsigrinum á Eistlandi í gær þar sem hann lagði upp eitt mark fyrir Viktor Bjarka Daðason. Alls hefur hann komið að þremur mörkum í undankeppni EM til þessa.
Galetti segir mörg félög í fimm stærstu deildum Evrópu fylgjast með Ágústi og möguleiki á því að hann taki stökkið í sumarglugganum.
Í byrjun ársins var hann nálægt því að ganga í raðir Rakow í Póllandi en félagaskiptin duttu fyrir sig. Talið er að verðmiðinn hafi verið í kringum 80 milljónir.
???????????? EXCL | Several European clubs, including from top-5 leagues, have asked for info on Agust Orri Thorsteinsson.
— Rudy Galetti (@RudyGaletti) March 26, 2026
The Breidablik player, who hit a top speed of 36 km/h, recently debuted for Iceland’s senior team and starts today in U21 Euro qualifiers vs Estonia.
One to watch. pic.twitter.com/cWAGTgzwQc
Athugasemdir


