Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fös 27. mars 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe einu marki frá meti Giroud
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe er nú aðeins einu marki frá því að jafna markamet Olivier Giroud hjá franska landsliðinu.

Mbappe skoraði fyrra mark Frakka í 2-1 sigrinum á Brasilíu í Bandaríkjunum í gær.

Það var 56. mark Mbappe fyrir landsliðið og er hann nú einu marki frá Giroud sem er sá markahæsti í sögu Frakka.

Munurinn er að vísu sá að Giroud spilaði 137 landsleiki á meðan Mbappe hefur aðeins spilað 95 leiki.

Mbappe er aðeins 27 ára gamall en þegar metið fellur mun hann þurfa að setja sér nýtt markmið.

Ekkert svo vitlaust að stefna á hundrað mörk sem er vel geranlegt miðað við tölfræði hans síðustu ár. Aðeins þrír leikmenn hafa skorað 100 landsliðsmörk eða meira en það eru þeir Cristiano Ronaldo (146), Lionel Messi (115) og Ali Daei (108).


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir