Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fös 27. mars 2026 00:43
Brynjar Ingi Erluson
Heimir: Eina sem við finnum er sársauki
Heimir Hallgrímsson
Heimir Hallgrímsson
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson var eðlilega niðurlútur eftir tapið gegn Tékkum í undanúrslitum HM-umspilsins í kvöld en draumurinn um að fara með Íra á heimsmeistaramótið er úti.

Írar komust inn í umspilið með ótrúlegum hætti, en liðið náði í 2-0 sigur gegn Portúgal og vann síðan enn magnaðri 3-2 sigur á Ungverjum til að tryggja sig inn í umspilið.

Í kvöld voru þeir grátlega nálægt því að koma sér í úrslitaleik gegn Dönum. Írar komust í 2-0 en glutruðu þeirri forystu niður og enduðu á að tapa eftir vítakeppni.

Heimir finnur aðeins fyrir sársauka í kvöld, en segist þó ákaflega stoltur af sínum mönnum.

„Sársauki er það eina sem ég finn. Ég finn líka fyrir stolti af frammistöðu leikmanna. Þeir gáfu allt sitt í þetta og er ég sömuleiðis þakklátur stuðningsmönnunum sem mættu hingað og sýndu okkur stuðning í gegnum allan leikinn og eftir hann. Ég er stoltur að vera hluti af þessum hóp, en svona á persónulegum nótum þá finna leikmennirnir og ég aðeins fyrir sársauka.“

„Þessi leikur einkenndist af föstum leikatriðum, háum boltum og einvígum. Þetta datt með okkur og við komumst í 2-0, en síðan fáum við kannski heldur snemma á okkur mark þó það sé aldrei réttur tími til að fá á sig mark. Þeir minnka samt muninn rétt eftir annað markið okkar.“

„Eftir það fannst mér hvorugu liðinu ná tökum á leiknum. Þetta snerist um baráttu, háa bolta, einvígi og föst leikatriði. Mér fannst eftir annað markið okkar að við værum komnir með stjórnina, en já þetta er haugur af tilfinningum og mikið undir,“
sagði Heimir.

Eftir tvö ár fer Evrópumótið fram í Englandi, Skotlandi, Wales og Írlandi, en þó Írar séu meðal gestgjafa þá fara þeir ekki beint á mótið. UEFA ákvað að allar þjóðirnar fara í gegnum undankeppnina.

Aðeins eru tvö laus pláss fyrir gestgjafa. Takist hins vegar tveimur þjóðum að fara beint á EM í gegnum undankeppnina munu hinar tvær þjóðirnar fá þessi tvö aukasæti sem eru fyrir gestgjafa mótsins.

„Við tökum það með okkur að við getum spilað gegn þjóðum sem eru ofar á heimslistanum og veitt þeim samkeppni, hvort sem það er í Portúgal, Ungverjalandi eða hér. Við getum barist við þau.“

„Við mættum hingað með þrjá sigra í röð. Það er langt síðan það gerðist í þessu landsliði þannig maður sér vöxt. Þú sérð leikmannahópinn þroskast og þetta er stærsti leikur sem flestir af þessum leikmönnum hafa spilað þannig það er hvetjandi og sýnir að við erum að vaxa sem lið.“

„Samt er alltaf skrítið að segja þetta eftir tap. Ég veit að ég er hlutdrægur, en öll tölfræðin og mælikvarðinn í kringum liðið hefur batnað. Allt undir í stóru leikjunum og barátta allan tímann, og okkur tókst að komast í gegnum þetta.“

„Við höfum náð að sýna þrautseigju og þess vegna er ég fullviss um að við munum halda áfram að bæta okkur,“
sagði Heimir í lokin.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner