Máni Pétursson, stjórnarmaður KSÍ, liggur yfirleitt ekki á skoðunum sínum. Í færslu á X í dag hvetur hann íslenska atvinnumenn í fótbolta til þess að geyma peninga sína erlendis ef frá sem fer horfir að Þjóðarhöll rísi áður en endurbætur á þjóðarleikvanginum í fótbolta, Laugardalsvelli, verði kláraðar.
Búið er að skipta um undirlag á leikfletinum en KSÍ vill frekari framkvæmdir á mannvirkjum; svo sem búningsaðstöðu og aðstöðu fyrir stuðningsmenn og fjölmiðla.
Á vef UMFÍ í dag segir að á þessu ári sé áætlað að verja 1238 milljónum króna úr ríkissjóði í uppbyggingu þjóðarhallar. Lengi hefur verið kallað eftir nýrri þjóðarhöll en KSÍ hefur líka lengi ætlað sér í stærri breytingar á Laugardalsvelli án þess að það hafi verið gert.

„Ef Þjóðarhöll verður byggð áður en Laugardalsvöllur verður kláraður. Held ég að það sé rétt að hvetja alla atvinnumenn okkar í knattspyrnu að fjárfesta og geyma alla peningana sína erlendis. Þessi skítlega framkoma yfirvalda gagnvart knattspyrnunni í þessu landi þarf að fara svara með einni góðri tæklingu," skrifar Máni.
Ef Þjóðahöll verður byggð áður en Laugardalsvöllur verður kláraður. Held ég að það sé rétt að hvetja alla atvinnumenn okkar í knattspyrnu að fjárfesta og geyma alla peningana sína erlendis. Þessi skítlega framkoma yfirvalda gagnvart knattspyrnunni í þessu landi þarf að fara…
— Máni Pétursson (@Manipeturs) March 26, 2026
Athugasemdir