Senegalar ætla að hafa fimmtán mínútna fögnuð með Afríkubikarinn þrátt fyrir að hafa verið svipt titlinum, en það er gert til þess að mótmæla dómi afríska fótboltasambandsins.
Fjölmargir vináttulandsleikir eru á dagskrá þessa helgina en landsliðin undirbúa sig af kappi fyrir HM í sumar.
Englendingar spila við Úrúgvæ klukkan 19:45 á Wembley í kvöld og Evrópumeistarar Spánverja spila við Serbíu. Sá leikur hefst klukkan 20:00.
Klukkan 23:15 munu heimsmeistarar Argentínu spila við Máritaníu.
Á morgun spilar íslenska karlalandsliðið við Kanada í Toronto en hann fer fram á BMO-vellinum og hefst klukkan 17:00. Senegal, sem var á dögunum svipt Afríkumeistaratitlinum, tekur á móti Perú í París, en til gamans má geta að Senegalar munu þar mæta með Afríkubikarinn.
Senegalar hafa áfrýjað dómi afríska fótboltasambandsins og kalla eftir því að þeir haldi titlinum en liðið vann Marokkó í úrslitaleiknum fyrir tveimur mánuðum.
Hér fyrir neðan má finna alla helstu vináttulandsleiki helgarinnar.
Leikir helgarinnar:
Föstudagur:
13:00 Gínea - Togo
13:00 Benin - Palestína
13:00 Íran - Nígería
17:00 Jordan - Kosta Ríka
17:00 Austurríki - Gana
17:00 Svartfjallaland - Andorra
17:00 Suður-Afríka - Panama
17:30 Sádí Arabía - Egyptaland
19:00 Libya - Niger
19:00 Grikkland - Paragvæ
19:30 Alsír - Guatemala
19:45 England - Úrúgvæ
19:45 Holland - Noregur
19:45 Sviss - Þýskaland
20:00 Spánn - Serbía
20:15 Marokkó - Ekvador
23:15 Argentína - Máritanía
Laugardagur:
13:00 Sambía - Malaví
14:00 Kyrgyzstan - Madagascar
14:00 San Marino - Færeyjar
14:00 Suður Kórea - Fílabeinsströndin
16:00 Senegal - Perú
16:00 Botswana - Simbabve
17:00 Kanada - Ísland
17:00 Ungverjaland - Slóvenía
17:00 Skotland - Japan
19:30 Bandaríkin - Belgía
Sunnudagur:
00:00 Haiti - Túnis
01:00 Mexíkó - Portúgal
13:00 Armenia - Belarús
13:00 Litáen - Georgía
19:00 Kólumbía - Frakkland
Athugasemdir


