Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fös 27. mars 2026 00:11
Brynjar Ingi Erluson
Sá yngsti til að spila 80 landsleiki
Mynd: EPA
Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Donnarumma setti met er hann spilaði 80. landsleik sinn í 2-0 sigrinum á Norður-Írlandi í umspili um sæti á HM í kvöld.

Donnarumma, sem er 27 ára gamall, lék sinn fyrsta A-landsleik með Ítalíu árið 2016 er hann kom inn í hálfleik fyrir goðsögnina Gianluigi Buffon í leik gegn Frökkum.

Síðan þá hefur landsleikjunum fjölgað og hann verið markvörður númer eitt síðustu sjö árin eða svo.

Hann lék sinn 80. landsleik í kvöld og hélt hreinu. Það gerir hann að þeim yngsta til að ná 80 landsleikjum með Ítalíu, en hann tók metið af Paolo Maldini sem náði þessu afreki aðeins 29 ára gamall árið 1997.

Donnarumma stefnir að næsta meti sem er að taka landsleikjametið af Buffon.

Buffon spilaði 176 A-landsleiki með Ítalíu og varð heimsmeistari með liðinu árið 2006.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir