Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 20:03
Brynjar Ingi Erluson
„Hef ekkert slæmt að segja um Amorim“
Harry Maguire og Ruben Amorim
Harry Maguire og Ruben Amorim
Mynd: EPA
Harry Maguire, leikmaður Manchester United, segist ekki hafa neitt slæmt að segja um portúgalska þjálfarann Ruben Amorim sem var látinn fara frá félaginu í byrjun ársins.

Amorim tók við United af Erik ten Hag í nóvember árið 2024 og náði aldrei þeim árangri sem hann ætlaði sér.

Markmiðið var að koma United aftur í fremstu röð og þó hann hafi vissulega komið því í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta ári þá var árangurinn ekki sá sami í deildinni.

United lét hann fara í byrjun ársins og tók Darren Fletcher við til bráðabirgða áður en Michael Carrick var ráðinn út tímabilið. Síðan þá hefur liðinu gengið frábærlega og er á góðri leið með að koma sér aftur í Meistaradeild Evrópu en Maguire, sem ræddi við Guardian segir að því miður hafi hugmyndafræði Amorim ekki gengið upp hjá United.

„Ég hef ekkert slæmt að segja um Ruben. Ég er mjög hrifinn af honum og tel hann hafa frábærar hugmyndir, en þær bara virkuðu ekki hjá Manchester United.“

„Hann mun eiga stórkostlegan feril og eflaust vinna marga leiki hjá næsta félagi sem hann tekur við. Þetta bara small ekki eða virkaði hjá Man Utd og það skrifast líka mikið til á okkur leikmennina sem þurfum að taka mikla ábyrgð á því.“

„En hann fór með félagið í ákveðna átt og finnst mér hann eiga mikið hrós skilið fyrir það. Hann hefur byggt góðan og traustan hóp,“
sagði Maguire.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner