Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 19. október 2025 15:37
Brynjar Ingi Erluson
Draumabyrjun hjá Man Utd á Anfield
Bryan Mbeumo skorar.
Bryan Mbeumo skorar.
Mynd: EPA
Kamerúnski sóknarmaðurinn Bryan Mbeumo var rétt í þessu að koma Manchester United í 1-0 gegn Liverpool í erkifjendaslag á Anfield en markið kom eftir rúma mínútu.

Mbeumo skoraði eftir snyrtilega sókn. Bruno Fernandes kom boltanum út hægra megin á Amad Diallo sem keyrði í átt að vörninni áður en hann stakk boltanum inn fyrir á Mbeumo sem laumaði boltanum í nærhornið og framhjá Giorgi Mamardashvili í markinu.

Markið kom eftir rúma mínútu og algert reiðarslag fyrir heimamenn sem voru sofandi á verðinum.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér

Slapp
Athugasemdir
banner