Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 20. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Gera meistararnir atlögu að titlinum?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
30. umferð ítalska deildartímabilsins hefst í dag og er þetta jafnframt síðasta umferðin fyrir fyrsta landsleikjahlé ársins.

Ítalíumeistarar Napoli hefja leik í Sardiníu í dag þegar þeir heimsækja Cagliari, áður en Genoa og Udinese eigast við í norð-ítölskum slag. Mikael Egill Ellertsson hefur verið að gera flotta hluti í liði Genoa á tímabilinu.

Napoli er níu stigum á eftir toppliði Inter þegar níu umferðir eru eftir af tímabilinu á meðan Cagliari er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið. Genoa og Udinese sigla bæði lygnan sjó í neðri hlutanum.

Á morgun eiga stórveldi AC Milan og Juventus heimaleiki gegn Torino og Sassuolo og eru fimm leikir á dagskrá á sunnudaginn.

Lærlingar Cesc Fábregas í Como hefja daginn á heimavelli í hádeginu áður en Atalanta á heimaleik. Bologna spilar við Lazio í spennandi slag áður en Lecce heimsækir Roma, en Þórir Jóhann Helgason hefur fengið afar lítinn spiltíma á árinu.

Albert Guðmundsson og félagar í fallbaráttuliði Fiorentina eiga að lokum heimaleik gegn toppliði Inter.

Föstudagur
17:30 Cagliari - Napoli
19:45 Genoa - Udinese

Laugardagur
14:00 Parma - Cremonese
17:00 Milan - Torino
19:45 Juventus - Sassuolo

Sunnudagur
11:30 Como - Pisa
14:00 Atalanta - Verona
14:00 Bologna - Lazio
17:00 Roma - Lecce
19:45 Fiorentina - Inter
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
18 Cremonese 29 5 9 15 23 44 -21 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner