María Catharína Ólafsdóttir Grós var í byrjunarliði Djurgården sem mætti BK Häcken í undanúrslitum sænska bikarsins í dag.
María Catharína skoraði fyrsta mark leiksins framhjá Fanneyju Ingu Birkisdóttur strax á tíundu mínútu og héldu heimakonur forystunni allt þar til á lokakaflanum.
Í síðari hálfleik kom hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir inn af bekknum í liði Häcken og náði sænska landsliðskonan Felicia Schröder að gera jöfnunarmark á 81. mínútu. Felicia er gríðarlega efnileg og aðeins 18 ára gömul.
Leikurinn fór því í framlengingu og þar réði Felicia úrslitum með tvennu, svo lokatölur urðu 1-3 fyrir Häcken. Fanney Inga, Thelma Karen og stöllur í stórliði Häcken mæta Hammarby í úrslitaleiknum.
Hammarby lagði Kristianstad að velli í hinum undanúrslitaleik dagsins, þar sem Elin Sörum skoraði bæði mörk leiksins.
Guðrún Arnardóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá sigurliði Hammarby og voru tvær íslenskar í byrjunarliði Kristianstad, sem leikur undir stjórn Nik Chamberlain.
Alexandra Jóhannsdóttir og Linda Líf Boama voru í byrjunarliðinu en þeim tókst ekki að koma í veg fyrir tap. Elísa Lana Sigurjónsdóttir byrjaði á bekknum en fékk að spila síðasta hálftímann í tapinu.
Það voru því fjögur Íslendingalið í undanúrslitum bikarsins sem er haldinn sem partur af undirbúningstímabilinu í Svíþjóð.
Þá var Íslendingaslagur í fyrstu umferð í efstu deild í Noregi þegar Brann rúllaði yfir Molde.
Marie Rekdal Jóhannsdóttir var í byrjunarliði heimakvenna í Molde sem réðu ekki við stórlið Brann. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss, skoraði tvennu í sigrinum.
Diljá Ýr Zomers kom inn af bekknum í síðari hálfleik og var búin að gefa stoðsendingu þremur mínútum síðar. Lokatölur urðu 0-5.
Að lokum lék Glódís Perla Viggósdóttir allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá FC Bayern sem rúllaði yfir Essen í efstu deild í Þýskalandi.
Glódís var með fyrirliðabandið og hélt Bayern hreinu í 0-5 sigri á útivelli. Bayern er svo gott sem búið að vinna deildina, með 58 stig eftir 20 umferðir.
Djurgarden 1 - 3 Hacken
1-0 María Catharína Ólafsdóttir Grós ('10)
1-1 Felicia Schröder ('81)
1-2 Felicia Schröder ('97)
1-3 Felicia Schröder ('120)
Kristianstad 0 - 2 Hammarby
0-1 Elin Sörum ('48)
0-2 Elin Sörum ('81)
Rautt spjald: Victoria Persson, Kristianstad ('61)
Molde 0 - 5 Brann
0-1 Brenna Lovera ('3)
0-2 Brenna Lovera ('31)
0-3 C. Kvamme ('59)
0-4 A. Aahjem ('76)
0-5 M. Bersas, sjálfsmark ('80)
Essen 0 - 5 Bayern
0-1 Pernille Harder ('4)
0-2 Linda Dallman ('9)
0-3 Pernille Harder ('68, víti)
0-4 Natalia Padilla ('71)
0-5 Edna Imade ('88)
Rautt spjald: J. Meissner, Essen ('8)
Athugasemdir

