Það var nóg um að vera í Mjólkurbikarnum í dag og í kvöld þar sem Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliðinu hjá Selfossi og innsiglaði þægilegan sigur á útivelli gegn KÁ.
Guðmundur Stefánsson og Elvar Orri Sigurbjörnsson komust á blað í fyrri hálfleik áður en Viðar Örn gerði út um einvígið eftir leikhlé.
Óliver Úlfar Helgason var þá atkvæðamestur með tvennu í sjö marka stórsigri Ýmis gegn Fálkum á meðan leikmenn KV skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín í 5-0 sigri gegn KB. Fjögur af fimm mörkum leiksins komu þegar flóðgáttirnar opnuðust á lokakaflanum.
BF 108 fór að lokum létt með Afríku til að tryggja sér sæti í næstu umferð.
Úrslit eiga enn eftir að berast úr heimaleikjum Dalvíkur/Reynis, Léttis og Uppsveita. Heimaleik Tindastóls var frestað.
KÁ 0 - 3 Selfoss
0-1 Guðmundur Stefánsson ('35 )
0-2 Elvar Orri Sigurbjörnsson ('37 )
0-3 Viðar Örn Kjartansson ('58 )
Ýmir 7 - 0 Fálkar
1-0 Dagur Eiríksson ('14 )
2-0 Börkur Elí Davíðsson ('18 )
3-0 Breki Ottósson ('28 )
4-0 Dagur Eiríksson ('33 )
5-0 Óliver Úlfar Helgason ('68 )
6-0 Andri Már Harðarson ('80 )
7-0 Óliver Úlfar Helgason ('93 )
KV 5 - 0 KB
1-0 Óliver Dagur Thorlacius ('36 )
2-0 Eiður Snorri Bjarnason ('83 )
3-0 Eyþór Daði Kjartansson ('88 )
4-0 Þór Óli Bjarnason ('95 )
5-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('96 )
Rautt spjald: Ibrahim Kolbeinn Jónsson, KB ('90)
BF 108 5 - 1 Afríka
1-0 Elías Muni Eyvindsson ('13 )
1-1 Godwin Odokwo ('16)
2-1 Adrían Elí Þorvaldsson ('29 )
3-1 Kristófer Dagur Sigurðsson ('59 )
4-1 Tristan Egill Elvuson Hirt ('85 )
5-1 Heiðar Ingi Geirsson ('93)
Athugasemdir


