„Við teygðum okkur eins langt og við gátum á móti frábæru Valsliði, en samt sem áður er ótrúlega sárt að taka 20.mínútna kafla í fyrri hálfleik þar sem við lýtum út eins og boltinn sé heitur, sagði Freyr Alexandersson í samtali við Fótbolta.net eftir að lærisveinar hans og Davíðs Snorra í Leikni töpuðu 1-0 á heimavelli í baráttuleik gegn Val í Pepsi deildinni nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 1 Valur
„Við erum stöðugt að reyna að gera eitthvað í hlutunum og bæta okkur. Við erum inní öllum leikjum, okkur vantar einhver töfrabrögð en þau eru ekki til staðar akkúrat núna."
„Ef ég get fundið einhvern töframann sem er til í að spila fyrir lítinn pening og geti verið betri en leikmennirnir sem við eigum þá verður það skoðað," sagði Freysi.






















