Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. ágúst 2018 09:42
Magnús Már Einarsson
Leipzig með nýtt tilboð í Lookman
Mynd: Getty Images
Þýska félagið RB Leipzig hefur lagt fram 22 milljóna punda tilboð í Ademola Lookman, kantmann Everton, en Sky greinir frá þessu.

Lookman var á láni hjá Leipzig síðari hlutann á síðasta tímabili.

Í sumar lagði Leipzig fram tólf milljóna punda tilboð í Lookman en þá hafði Everton engan áhuga á að selja.

Félagaskiptaglugginn í Þýskalandi lokar ekki fyrr en um mánaðarmótin og Leipzig er ennþá að reyna við Lookman.

Lookman var ónotaður varamaður þegar Everton lagði Southampton 2-1 um helgina.
Athugasemdir
banner
banner