Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefði verið draumur að fá þessa tvo
Elías Már Ómarsson.
Elías Már Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Í vetur komu Arnór Ingvi Traustason og Elías Már Ómarsson heim í íslenska boltann eftir mörg ár í atvinnumennsku. Arnór Ingvi gekk í raðir KR og Elías Már samdi við Víkinga.

Báðir léku þeir með Keflavík áður en þeir fóru í atvinnumennsku og voru orðaðir þangað í vetur. Þeir sömdu þó á endanum annars staðar.

Keflvíkingar eru að koma upp sem nýliðar í Bestu deildina og er spáð 12. sætinu fyrir tímabilið. Rætt var um Arnór Ingva og Elís í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net í vikunni þar sem Egill Darri Einarsson og Helgi Bergmann Hermannsson, stuðningsmenn Keflavíkur, fóru yfir sviðið fyrir komandi keppnistímabil.

„Maður hefði viljað sjá Elías koma heim, og sama með Arnór Ingva. Maður hefði alveg verið til í að sjá þessa tvo koma en þá er maður kannski að biðja um of mikið," sagði Helgi Bergmann.

„Það er meiri draumur. En svo er búið að tala eitthvað um og maður hefur það frá ansi áreiðanlegum áttum að okkur var boðið að fá Elías aftur. Það var gegn því að taka allan launapakkann og það er helvíti stór launapakki. Ég held að það sé ekki lengur á borðinu en það hefði verið frábært að fá hann. Ég veit að Keflvíkingarnir teygðu sig ansi langt til að reyna en það er kannski erfitt að keppa við Fossvoginn þegar kemur að peningum," sagði Egill Darri.

Þeir vonast til að Elías Már komi heim einn daginn.

„Maður vonar að hann komi einn daginn heim. Það væri ljúft," sagði Helgi.

„Hann á helling eftir. Hann tekur eitt tímabil með Gylfa, skorar nokkur mörk og kemur svo til okkar," sagði Egill Darri.

Hægt er að hlusta á Niðurtalninguna í heild sinni hér að neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Athugasemdir
banner