Það hefur mikið gengið hjá ÍBV frá því að síðasta tímabili í Bestu deildinni lauk.
Þorlákur Árnason náði frábærum árangri með Eyjamenn á síðasta tímabili en hann hætti óvænt eftir að tímabilinu lauk. Ástæðan fyrir uppsögninni sagði hann vera þá að fyrirliði liðsins, Alex Freyr Hilmarsson, var ráðinn framkvæmdastjóri fótboltadeildar félagsins og Láki sá að það myndi ekki ganga upp.
Þorlákur Árnason náði frábærum árangri með Eyjamenn á síðasta tímabili en hann hætti óvænt eftir að tímabilinu lauk. Ástæðan fyrir uppsögninni sagði hann vera þá að fyrirliði liðsins, Alex Freyr Hilmarsson, var ráðinn framkvæmdastjóri fótboltadeildar félagsins og Láki sá að það myndi ekki ganga upp.
Nokkrir þjálfarar voru orðaðir við starfið en svo var Aleksandar Linta ráðinn sem er býsna athyglisvert.
„Ég verð bara að viðurkenna að ég þurfti að gúggla hann," sagði Arnar Gauti Grettisson, stuðningsmaður ÍBV, þegar rætt var um Linta í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Þjálfaramálin voru mikið til umræðunni í þættinum en Arnar Gauti var gestur í þættinum ásamt Óliver Magnússyni, en þeir eru báðir Eyjamenn.
„Ég vissi ekkert hver þetta var. Það voru komnar einhverjar sögusagnir um að þetta væri að fara að gerast. Úr því sem komið var er þetta frábært. Maður heyrir bara mjög góða hluti um hann," bætti Arnar Gauti við.
Linta bjó í fimmtán ár á Íslandi og kom fyrst hingað árið 1997 til að spila með liði ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem þjálfaraferill hans hófst 2012. Hann hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu, meðal annars sem þjálfari undir 19 ára landsliðs Serba og var síðast hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar.
„Maður heyrir að leikmenn séu mjög sáttir með hann. Ég hef ekki heyrt neitt neikvætt, bara jákvæða hluti," sagði Óliver.
„Ég held að við séum að fara í einhvern varnarbolta en maður vonar að Linta bjóði upp á brasilískan bílastæðabolta," sagði Arnar Gauti léttur.
Hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum. Þar er meðal annars rætt mikið um brotthvarf Láka og ráðninguna á Linta.
Athugasemdir


