Kanadíski bakvörðurinn Alphonso Davies er kominn aftur á meiðslalistann hjá FC Bayern eftir að hafa orðið fyrir vöðvameiðslum í sigri gegn Eintracht Frankfurt í gær.
Davies var í byrjunarliðinu en þurfti að fara af velli í upphafi síðari hálfleiks vegna meiðslanna.
Davies hefur lengi verið álitinn meðal bestu vinstri bakvarða heims en tíð meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Hann var frá keppni í rúmlega 8 mánuði í fyrra eftir að hafa slitið krossband en hann hefur glímt við tíð meiðslavandræði í gegnum ferilinn.
Bakvörðurinn fljóti, sem getur einnig spilað á kantinum, er 25 ára gamall og með fjögur og hálft ár eftir af samningi við Bayern.
Búist er við að Davies verði frá keppni í tæpan mánuð vegna meiðslanna. Hann gæti tekið þátt í seinni leik FC Bayern í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar um miðjan mars.
Athugasemdir




