Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 10:56
Brynjar Ingi Erluson
Umdeild atvik á Etihad - „Bernardo er heppinn“
Mynd: EPA
Dan Burn var fórnarlambið í báðum atvikunum
Dan Burn var fórnarlambið í báðum atvikunum
Mynd: EPA
Umdeild atvik áttu sér stað í 2-1 sigri Manchester City á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í gær en Bernardo Silva braut þá af sér á gulu spjaldi og þá var mark dæmt af Dan Burn eftir að Ruben Dias ýtti honum inn í rangstöðu.

Silva hafði fengið gula spjaldið stuttu áður en keyrði síðan inn í Dan Burn sem vakti mikla umræðu á samfélagsmiðlum.

Portúgalinn fór af fullum krafti inn í Burn en Thomas Bramall, dómari leiksins, sá ekki ástæðu til að senda hann í sturtu.

VAR ákvað að aðhafast ekki þar sem það taldi þetta ekki vera beint rautt spjald og þá er ekki hægt að skoða atvik þegar það kemur að því að gefa seinna gula.

„Það var verið að spjalda Bernardo. Hann horfði ekki einu sinni á boltann heldur fór bara beint í að brjóta á honum. Bernardo er heppinn því ég hélt að dómarinn myndi fara beint í vasann,“ sagði Glenn Hoddle í lýsingu á TNT Sports.

Bernardo horfði aldrei á boltann heldur keyrði bara inn í Burn sem hrundi í grasið. Þetta var ekki eina umdeilda atvikið, en Burn skoraði jöfnunarmark í fyrri hálfleiknum sem var síðar dæmt af vegna rangstöðu.

Ástæðan fyrir rangstöðunni er sú að Ruben Dias ýtti honum í rangstöðuna, en Dias var þá sjálfur á gulu spjaldi.

„Mér fannst ákvarðanirnar ekki falla með okkur í dag, en ég vil ekki fara þennan veg. Ég er ekki einn af þessum stjórum sem vill vera í því að gagnrýna dómara þannig en á sama tíma vil ég samt segja að þetta hafi ekki verið okkur í hag í þessum leik,“ sagði Eddie Howe, stjóri Newcastle eftir leik.




Athugasemdir
banner
banner