Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir gærdagsins: O'Reilly og Stach fá níur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Burnley
Mynd: Leeds United
Mynd: Leeds
Það fóru fimm leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og gaf Sky Sports leikmönnum einkunnir í öllum leikjum nema einum, sigri Brighton á útivelli gegn Brentford.

Það kemur engum á óvart að bakvörðurinn ungi Nico O'Reilly hafi verið valinn bestur í 2-1 sigri Manchester City á Newcastle í stórleik dagsins. O'Reilly spilaði á vinstri kantinum og skoraði bæði mörk City í dýrmætum sigri á mikilvægum tímapunkti deildartímabilsins.

O'Reilly fær 9 í einkunn fyrir sinn þátt og eru einungis liðsfélagar hans Rodri og Erling Haaland sem komast nálægt honum í einkunnagjöfinni með 8.

Wesley Fofana sem lét reka sig af velli í dramatísku jafntefli Chelsea gegn Burnley var skúrkurinn í einkunnagjöf Sky, með 4 í einkunn. Zian Flemming sem skallaði jöfnunarmark Burnley í netið á 93. mínútu var maður leiksins með tvöfalt hærri einkunn. James Ward-Prowse sem kom inn af bekknum og Joe Worrall fengu einnig áttur fyrir sinn þátt.

Anton Stach kórónaði frábæran leik með draumamarki í jafntefli Leeds United á Villa Park og var valinn sem besti leikmaður vallarins með 9 í einkunn. Ethan Ampadu komst næst honum með 8 fyrir sinn þátt.

Að lokum var kantmaðurinn knái Crysencio Summerville sá besti í markalausu jafntefli á London Stadium. Hann sýndi frábæra takta en tókst ekki að skora.

Man City: Donnarumma (7), Nunes (7), Dias (6), Guehi (7), Ait-Nouri (7), Rodri (8), O'Reilly (9), Semenyo (7), Bernardo (7), Marmoush (6), Haaland (8).
Varamenn: Khusanov (6), Cherki (7)

Newcastle: Pope (7), Hall (6), Burn (6), Thiaw (6), Trippier (6), Tonali (6), Willock (5), Woltemade (5), Elanga (5), Ramsey (7), Gordon (6).
Varamenn: Joelinton (6), Barnes (6)



Chelsea: Sanchez (6), James (7), Fofana (4), Chalobah (7), Gusto (6), Caicedo (6), Andrey Santos (6), Neto (6), Palmer (6), Fernandez (6), Joao Pedro (7).
Varamenn: Tosin (5), Delap (5), Hato (5), Sarr (5), Acheampong (5).

Burnley: Dubravka (6), Laurent (6), Worrall (8), Esteve (7), Walker (5), Ugochukwu (7), Mejbri (7), Humphreys (7), Edwards (7), Anthony (6), Flemming (8).
Varamenn: Pires (6), Ward-Prowse (8), Bruun Larsen (6), Tchaouna (6), Barnes (6).



Aston Villa: Martinez (6), Cash (6), Konsa (6), Mings (6), Maatsen (6), Onana (5), Luiz (5), Bailey (5), Buendia (6), Rogers (6), Watkins (6).
Varamenn: Barkley (6), Abraham (7), Garcia (6), Bogarde (6)

Leeds: Darlow (7), Justin (7), Rodon (7), Struijk (6), Bogle (7), Gudmundsson (6), Ampadu (8), Stach (9), Gruev (7), Aaronson (6), Calvert-Lewin (7).
Varamenn: Nmecha (6), Bijol (6)



West Ham: Hermansen (7); Wan-Bissaka (7), Disasi (7), Mavropanos (7), Diouf (7); Soucek (6), Fernandes (6), Magassa (6); Bowen (6), Castellanos (6), Summerville (8).
Varamaður: Wilson (6)

Bournemouth: Petrovic (7); Jimenez (7), Hill (7), Senesi (7), Truffert (7); Scott (7), Adams (7); Rayan (7), Kroupi (6), Adli (6); Evanilson (6).
Varamenn: Brooks (6), Christie (6), Tavernier (6)
Athugasemdir
banner
banner