Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - ÍA fer á Húsavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Það eru sex leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag þar sem eingöngu er keppt í karlaflokki.

Völsungur tekur á móti ÍA á GPG vellinum á Húsavík í eina leik dagsins í A-deild. Skagamenn eiga fjögur stig eftir þrjár umferðir en Völsungur er aðeins búinn að spila einn leik, 10-0 tap gegn Þór á Akureyri.

Þróttur Vogum mætir Víði Garði í nágrannaslag í eina leik dagsins í B-deildinni. Liðin eigast við í 2. umferð eftir að Þróttur tapaði fyrsta leik en Garðsmenn náðu jafntefli.

Uppsveitir, Léttir, Skallagrímur og Stokkseyri eiga að lokum 'heimaleiki' í C-deildinni sem eru ekki á heimavöllum liðanna.

Lengjubikar karla - A deild, riðill 2
15:00 Völsungur - ÍA (GPG völlurinn)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 3
14:00 Þróttur V. - Víðir (Domusnovavöllurinn)

Lengjubikar karla - C deild, riðill 1
18:00 Uppsveitir - Kría (JÁVERK-völlurinn)

Lengjubikar karla - C deild, riðill 2
16:00 Skallagrímur - SR (Akraneshöllin)
19:00 Léttir - RB (Knatthús Hauka)

Lengjubikar karla - C deild, riðill 3
16:00 Stokkseyri - KM (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir
banner