Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
Ásdís Karen skoraði - Bayern vann stórsigur í toppslagnum
Kvenaboltinn
Mynd: Braga
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Inter
Ásdís Karen Halldórsdóttir var í byrjunarliði Braga og skoraði í sigri liðsins gegn Marítimo í efstu deild portúgalska boltans í dag.

Braga vann tveggja marka sigur á útivelli og er með 16 stig eftir 12 umferðir, fimm stigum frá meistaradeildarsæti.

Glódís Perla Viggósdóttir lék þá allan leikinn í sigri FC Bayern gegn Wolfsburg í þýsku deildinni. Bayern er langbesta lið deildarinnar, með fjórtán stiga forystu á Wolfsburg sem situr í öðru sætinu.

Bayern lenti undir í fyrri hálfleik og var staðan 0-1 í leikhlé, en meistararnir mættu grimmir til leiks út í síðari hálfleikinn og gengu frá Wolfsburg með fjórum mörkum.

Íslendingalið Djurgården og Norrköping unnu þá sína leiki í sænska bikarnum. María Catharína Ólafsdóttir Grós var í byrjunarliði Djurgården í sigri gegn Alingsås á meðan Sigdís Eva Bárðardóttir lék stærsta hlutann í sigri Norrköping gegn Brommapojkarna.

Í ítalska boltanum voru Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í byrjunarliði Inter sem tapaði á heimavelli gegn AS Roma í mikilvægum titilbaráttuslag. Telma Ívarsdóttir er varamarkvörður Inter.

Roma trónir á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á Inter eftir þennan sigur. Rómverjar eiga 36 stig eftir 15 umferðir.

Að lokum lék hin efnilega Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir síðasta hálftímann í naumu tapi hjá PEC Zwolle gegn Feyenoord í efstu deild í Hollandi.

Þetta er annar tapleikurinn í röð hjá Zwolle, sem er sex stigum á eftir Feyenoord í evrópubaráttunni.

Maritimo 0 - 2 Braga
0-1 Maria Alagoa ('56)
0-2 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('72)

Bayern 4 - 1 Dortmund
0-1 Kessya Bussy ('16)
1-1 Jovana Damnjanovic ('54)
2-1 Jovana Damnjanovic ('56)
3-1 Georgia Stanway ('70)
4-1 Klara Buhl ('80)

Norrköping 1 - 0 Brommapojkarna
1-0 Julia Karlernas ('34)

Alingsås 0 - 1 Djurgården
0-1 Therese Asland ('17, víti)

Inter 0 - 1 Roma
0-1 Evelyne Viens ('33)

PEC Zwolle 0 - 1 Feyenoord
0-1 Romee van de Lavoir ('35)
Athugasemdir
banner
banner
banner