Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk og kom Al Nassr á toppinn í sádi-arabísku deildinni í gær en hann segist ánægður með lífið í landinu.
Ronaldo fór í verkfall í byrjun mánaðarins og missti af þremur leikjum.
Hann var óánægður með hvernig PIF (ríkissjóður Sádi-Arabíu) hafi sett mikla peninga í að styrkja önnur lið á borð við Al Ahli, Al Hilal og Al Ittihad.
Portúgalinn var ekki með gegn Al Riyadh, Al Ittihad og Arkadag, en mætti síðan inn í leikinn gegn Al Fateh og skoraði þar. Hann skoraði síðan tvö mörk til viðbótar gegn Al Hazem í gær.
Ronaldo er núna ánægður með lífið og sér fyrir sér að halda áfram að spila í landinu.
„Ég er ótrúlega ánægður hér. Eins og ég hef oft sagt þá tilheyri ég Sádi-Arabíu. Þetta er land sem tók á móti mér, fjölskyldu og vinum með opnum örmum. Ég er ánægður og vill halda áfram að spila hér.“
„Það mikilvægasta núna er að halda áfram á sömu braut. Við erum á toppnum. Við þurfum að vinna, setja pressu á keppinauta okkar og sjáum svo til hvað gerist. Við erum á réttri braut,“ sagði Ronaldo.
Athugasemdir


