Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Glasner: Í lífinu þarf maður stuðning þegar gengur illa
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Oliver Glasner þjálfari Crystal Palace svaraði spurningum eftir nauman sigur á botnliði Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Úlfarnir fengu frábær tækifæri til að skora og klúðruðu meðal annars vítaspyrnu áður en þeir misstu Ladislav Krejci af velli með tvö gul spjöld sem hann fékk með stuttu millibili.

„Ég held að allir sem horfðu á leikinn hafi séð hversu stressaðir við vorum í fyrri hálfleik. Við gerðum mikið af einföldum mistökum og markvörðurinn þurfti að bjarga okkur með að verja vítaspyrnu," sagði Glasner.

„Við vorum betri í síðari hálfleik og þar hjálpaði rauða spjaldið okkur líka. Það er margt jákvætt sem við getum tekið úr þessum leik og stuðningsmenn gáfu okkur mikla orku með sínum stuðningi. Þetta er svo mikilvægur sigur fyrir okkur."

Þetta var annar sigur Palace í síðustu sextán leikjum í öllum keppnum og því er eins og þungu fargi hafi verið lyft af leikmönnum og starfsteyminu.

„Það eru búin að vera svo mikil læti í kringum okkur síðustu mánuði og þau hafa haft áhrif. Um leið og það byrjar að ganga illa vindur þetta upp á sig endalaust. Sigurinn í dag mun hjálpa okkur en þetta er bara eitt lítið skref í rétta átt. Fyrsta rétta skrefið var sigurinn í Brighton og þetta er annað skrefið.

„Það er mikilvægt að fá sjálfstraustið til baka og ég er viss um að við getum snúið þessu við."


Bikarmeistarar Palace eru í þéttum pakka um miðja deild með 35 stig eftir 27 umferðir og ætlar Glasner að yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

   20.02.2026 07:00
Stuðningsmenn Palace kölluðu eftir höfði Glasner - „Takk kærlega fyrir stuðninginn“


Hann hefur verið að rífast við stuðningsmenn félagsins að undanförnu eftir að þeir sungu um að hann yrði rekinn en hann hrósaði þeim á fréttamannafundinum í dag.

   21.02.2026 11:11
Skýtur til baka á stuðningsmenn Palace - „Sýnið auðmýkt“


„Að mínu viti er það mikilvægasta að þeir styðji við liðið og í dag gerðu þeir það allan tímann. Auðvitað eru stuðningsmenn vonsviknir með ákveðin úrslit og frammistöður, það er eðlilegt þegar illa gengur. Auðvitað býst ég ekki við fagnaðarlátum þegar við töpum leikjum, en við skulum ekki gleyma því að félagið var í mjög slæmri stöðu þegar ég tók við og ég fann fyrir miklum stuðningi strax frá fyrsta degi.

„Í lífinu þá þarf maður stuðning þegar illa gengur, það er mikilvægt og í dag studdu þeir við liðið frá fyrstu til síðustu mínútu. Það skiptir miklu máli. Vonandi náum við að vinna fleiri leiki og þá verður lífið auðveldara fyrir okkur öll."


Palace er tíu stigum frá evrópubaráttunni þegar ellefu umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Liðið er auk þess í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar og getur reynt að vinna sér inn evrópusæti með því að sigra keppnina.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 18 7 3 56 21 +35 61
2 Man City 27 17 5 5 56 25 +31 56
3 Aston Villa 27 15 6 6 38 28 +10 51
4 Chelsea 27 12 9 6 48 31 +17 45
5 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
6 Liverpool 27 13 6 8 42 35 +7 45
7 Brentford 27 12 4 11 40 37 +3 40
8 Bournemouth 27 9 11 7 43 45 -2 38
9 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
10 Fulham 27 11 4 12 38 41 -3 37
11 Newcastle 27 10 6 11 38 39 -1 36
12 Sunderland 27 9 9 9 28 33 -5 36
13 Crystal Palace 27 9 8 10 29 32 -3 35
14 Brighton 27 8 10 9 36 34 +2 34
15 Leeds 27 7 10 10 37 46 -9 31
16 Tottenham 27 7 8 12 37 41 -4 29
17 Nott. Forest 27 7 6 14 25 39 -14 27
18 West Ham 27 6 7 14 32 49 -17 25
19 Burnley 27 4 7 16 29 52 -23 19
20 Wolves 28 1 7 20 18 51 -33 10
Athugasemdir
banner