Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að margt eigi eftir að gerast frá þessum tímapunkti og til loka tímabils, en hann segir að liðið muni ekki vinna restina af leikjunum sem eftir eru.
Það er að færast líf í titilbaráttunni eftir 2-1 sigur Man City á Newcastle United í gær.
Aðeins tvö stig skilja Arsenal og Man City að, en þessi lið eiga einmitt eftir að mætast innbyrðis á Etihad-leikvanginum.
„Ég get lofað ykkur því að margt mun gerast, svona ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn við ykkur,“ sagði Guardiola.
„Ég hef það á tilfinningunni að við séum ekki að fara vinna alla leikina en ég veit ekki með Arsenal. Tilfinning mín er sú að við erum ekki að fara vinna rest,“ sagði hann ennfremur.
Hér fyrir neðan má sjá alla leikina sem Arsenal og Man City eiga eftir.
Arsenal:
Tottenham (úti)
Chelsea (heima)
Brighton (úti)
Everton (heima)
Bournemouth (heima)
Man City (úti)
Newcastle (heima)
Fulham (heima)
West Ham (úti)
Burnley (heima)
Crystal Palace (úti)
Man City:
Leeds (úti)
Nottingham Forest (heima)
West Ham (úti)
Crystal Palace (heima)
Chelsea (úti)
Arsenal (heima)
Burnley (úti)
Everton (úti)
Brentford (heima)
Bournemouth (úti)
Aston Villa (heima)
Athugasemdir




