Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Linda Líf Boama sáu um mörk Kristianstad sem vann frábæran 3-2 sigur á Piteå í sænsku bikarkeppninni í dag.
Linda Líf, sem kom til Kristianstad frá Víkingi eftir síðasta tímabil, skoraði fyrsta mark liðsins á 36. mínútu og tveimur mínútum síðar bætti Elísa Lana við öðru.
Piteå minnkaði muninn hálftíma fyrir leikslok en nokkrum mínútum síðar bætti Elísa Lana við öðru marki sínu úr vítaspyrnu. Hún kom til félagsins frá FH á síðasta ári og er að fara inn í annað tímabil sitt með sænska liðinu.
Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks, tók við liðinu eftir síðasta tímabil.
Kristianstad er í efsta sæti C-riðils með 4 stig eftir tvo leiki en liðið getur tryggt sig áfram er það mætir Malmö í næsta mánuði.
Kristján Guðmundsson og stöllur hans í Damaiense töpuðu fyrir deildarmeisturum Benfica, 4-0, í portúgölsku úrvalsdeildinni.
Damaiense er í neðsta sæti deildarinnar með 6 stig á meðan Benfica stefnir að því að vinna deildina sjötta árið í röð en liðið er með tíu stiga forystu á toppnum eftir tólf leiki.
Athugasemdir

